Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Lorenzo Gagli (16/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
Nú hafa verið kynntir þeir 9 sem deildu 25. sætinu og rétt sluppu inn á Evróputúrinn.
Nú hafa Jonathan „Jigger“ Thomson, James Heath og Matthew Baldwin frá Englandi, Matthias Schwab frá Austurríki, Sebastian Heisele frá Þýskalandi og Henric Sturehed frá Svíþjóð, en þeir eru 6 af 7 sem deildu 18. sætinu. Þessir 7 spiluðu allir á samtals 14 undir pari. Nú á bara eftir að kynna þann síðasta af þessum 7, sem höfnuðu í 18. sæti: Lorenzo Gagli frá Ítalíu.
Lorenzo Gagli fæddist í Flórenz á Ítalíu 14. október 1985 og er því 32 ára.
Hann er 1,78 á hæð og 70 kg.
Gagli gerðist atvinnumaður í golfi 2006. Sem áhugamaður keppti Gagli m.a. í:
*Eisenhower Trophy (f.h. Ítalíu): 2006 og …
*St Andrews Trophy (f.h. Evrópu): 2006
Næsta ár á eftir, 2007, spilaði hann á Alps Tour og sigraði þrívegis þar þ.e. á Open AGF-Allianz de la Mirabelle d’Or 9. september 2007; Open La Margherita, 5. október 2007 og á Una Hotels Resort Open, 2. nóvember 2007.
Hann varð í 4. sæti á stigalista Alps Tour og hlaut kortið sitt á Áskorendamótaröð Evrópu að launum, fyrir 2008 keppnistímabilið.
Gagli fór síðan í Q-school 2008 og ávann sér kortið sitt fyrir Evrópumótaröðina fyrir 2009 keppnistímabilið.
Hann kaus að skipta sér milli Áskorendamótaraðarinnar og Evróputúrsins. Hann fór aftur í Q-school 2009 og spilaði á báðum mótaröðum 2010. Árið 2010 sigraði Gagli á Italian PGA Championship. Góður endasprettur árið 2010 varð til þess að hann varð í 17. sæti á Áskorendamótaraðar stigalistanum og aftur var Gagli kominn á Evróputúrinn 2011.
Besti árangur Gagli á Evróputúrnum er T-3 árangur á Barclays Scottish Open og 2. sætið á Madrid Masters.
Sem stendur er Gagli í 511. sæti heimslistans en hefir hæst verið meðal 150 bestu í heiminum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
