Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Matthias Schwab (13/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
Nú hafa verið kynntir þeir 9 sem deildu 25. sætinu og rétt sluppu inn á Evróputúrinn.
Nú hafa Jonathan „Jigger“ Thomson og Matthew Baldwin frá Englandi og Henric Sturehed frá Svíþjóð verið kynntir, en þeir eru þrír af 7 sem deildu 18. sætinu. Þessir 7 spiluðu allir á samtals 14 undir pari. Í kvöld verður Matthias Schwab frá Austurríki kynntur.
Matthias Schwab fæddist 9. desember 1994 í Schladming, Austurríki og er því 23 ára – Hann er 1,83 m á hæð og 73 kg.
Schwab býr í Rohrmoos, Austurríki og er félagi í GCC Dachstein, Tauern.
Schwab lauk ferli sínum sem áhugamaður í golfi sem besti Evrópubúinn á heimslista áhugamanna eftir mjög farsælan feril í bandaríska háskólagolfinu, þar sem hann var m.a. two-time-All-American með golfliði Vanderbilt University.
Sjá má afrek Schwab með Vanderbilt með því að SMELLA HÉR:
Hann var í sigurliði Evrópu í Palmer Cup 2016.
Schwab komst á Evróputúrinn á lokaúrtökumótinu í fyrstu tilraun sinni!
Helstu áhugamál Schwab utan golfsins eru að vera á skíðum, fótbolti, tennis og tölvuleikir.
Sem stendur er Schwab nr. 550 á heimslistanum.
Allar nánari upplýsingar um Schwab má nálgast á vefsíðu hans með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
