Spieth þarf að vinna í púttunum!
Jordan Spieth var ekki ánægður með frammistöðu sína í Sony Open.
Hann dró ekkert undan.
„Ég á mikla vinnu framundan í púttunum,“ sagði hann eftir að lokahringur upp á 66 högg skilaði honum T-18 árangri – 6 höggum á eftir sigurvegaranum Patton Kizzire.
Samtals lék Spieth á 11 undir pari, 269 höggum (69 68 66 66).
„Ég held að ég hafi verið í 100. sæti hvað varðar grædd pútt (ens. putting strokes gained).“
„Ég var í 95. sæti í dag og náði að setja niður nokkur lengri en 3 m en ég missti líka fullt af þeim. Þannig að ég á mikið verk frammundan með pútternum, þar er bara svo einfalt. Allt annað á eftir að vinnast.“
Þetta voru orð Spieth en hann var reyndar í 58. sæti hvað varðar grædd pútt og náði aðeins að setja niður 2 pútt lengri en 3 metra á 4. degi og púttaði 124 sinnum í mótinu.
Í samanburði við högg hans, sem eru næsta óaðfinnanleg – en þar leiðir hann með 61 högg á 72 flatir á tilskyldum höggafjölda, þá eru púttin léleg, en þetta gæti hafa orðið ansi áhugavert hefði pútterinn hans verið heitur.
En pútterinn var kaldur … alveg eins og á TOC þ.e. Tournament of Champions vikuna áður.
Já Spieth þarf að kippa púttunum í liðinn fyrir næsta mót sem hann tekur þátt í sem er Waste Management Phoenix Open eftir 2 vikur og síðan er hann skráður í AT&T Pebble Beach Pro-Am.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
