Nýju strákarnir á PGA 2018: Ryan Armour (46/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað var á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hlutu þannig kortin sín í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 var byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Hann hefir þegar verið kynntur, Chesson Hadley, efsti maður á peningalista Web.com Tour 2017.
Nú verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar, en þeir 25 hljóta einnig spilarétt og kort fyrir 2017-2018 keppnistímabilið á PGA Tour.
Sá sem var í 6. sæti og komst inn á PGA Tour í gegnum Web.com Tour finals er bandaríski kylfingurinn Ryan Armour en hann var með verðlaunafé á Web.com Finals upp á samtals $118,206.
Ryan Armour fæddist í Akron, Ohio, 27. febrúar 1976 og er því 41 árs.
Hann er 1,75 m og 73 kg.
Armour lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Ohio State University. Hann vann sér inn third-team All-American honors árið 1998 og var valinn í All-Big Ten liðið árin 1995 og 1998. Hann var einnig í U.S. Junior finals árið 1993.
Armour spilaði á Nationwide Tour, sem nú heitir Web.com Tour á árinum 2004 – 2006. Hann spilaði líka á NGA Hooters Tour árin 2002 – 2003 og á the Golden Bear Tour árið 2003.
Armour vann sér fyrst inn kortið sitt á PGA Tour 2007 með því að verða T13 í Q-Schoolárið 2006. Hann var líka í FedEx Cup árið 2007.
Eftir að verða í 172. sæti á peningalista PGA Tour 2008 þá missti Armour PGA Tour kortið sitt og var aftur kominn á Nationwide Tour árið 2009, þar sem hann spilaði allt til ársins 2012 og síðan aftur 2014. Hann varð í 20. sæti á Web.com Tour og síðan í 40. sæti á Web.com Tour Finals og vann sér aftur inn kortið sitt keppnistímabilið 2014–15.
Keppnistímabilið 2014–15, var hann í 195. sæti á FedEx stigalistanum: 200. sætið var síðasta sætið til þess að mega taka þátt í Web.com Tour Finals. Hann varð síðan í 41. sæti í Finals (að frátöldum efstu 25) í Finals, og vann sér inn Web.com Tour kortið sitt fyrir árið 2016.
Árið 2016 vann hann fyrsta sigur sinn á Web.com Tour en það var á the Panama Claro Championship. Þetta var fyrsti sigur hans eftir að hafa tekið þátt í 217 mótum.
Næsta keppnistímabil vann hann the Sanderson Farms Championship, sem var fyrsti PGA Tour sigur hans eftir að hafa spilað í 105 mótum á mótaröðinni.
Þessi sigur tryggði Armour m.a. þátttökurétt í fyrsta risamóti hans, þ.e. PGA Championship 2018.
Nú er Armour aftur kominn á PGA Tour.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
