Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Justin Walters (8/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
9 kylfingar deildu með sér 25. sætinu í ár; léku allir hringina 6 á samtals 13 undir pari.
Í dag verður Justin Walters frá S-Afríku kynntur en hann var einn af þeim 9 heppnu síðustu, sem hlutu kortið sitt en Ben Evans, Christiaan Bezuidenhout, Felipe Aguilar, Jazz Janewattananond, Gavin Moynihan, Matthew Nixon og Cristofer Blomstrand hafa þegar verið kynntir.
Justin Walters fæddist í Jóhannesarborg, S-Afríku 23. október 1980 og er því 37 ára.
Hann er hálfenskur og hálf-suður-afrískur. Í S-Afríku er hann í CC Johannesburg.
Í dag býr Walters í Horley á Englandi. Hann er 1,83 m og 104 kg.
Walters á eitt barn: Liam (f. 2014).
Á yngri árum tók Walters þátt í bandaríska háskólagolfinu og spilaði með liði North Carolina State University, þar sem hann varð tvívegis All American.
Eftir útskrift spilaði Walters á Sólskinstúrnum s-afríska og í Bandaríkjunum á minni mótaröðunum og komst síðan á Áskorendamótaröð Evrópu árið 2012 og náði hæst á stigalista Evrópumótaraðarinnar þ.e. í 64. sætið árið 2013.
Hann hefir 6 sinnum tekið þátt í lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar og komist á Evróputúrinn tvívegis 2015 og 2017.
Hann hefir tvívegis lent í 2. sæti á Evróputúrnum; einu sinni á Portugal Masters árið 2013, þar sem hann tryggði sér sæti á Evróputúrnum fyrir keppnistímabilið 2014.
Sem stendur er Walters nr. 465 á heimslistanum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
