Nýju strákarnir á PGA 2018: Shawn Stefani (44/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað var á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hlutu þannig kortin sín í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 var byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Hann hefir þegar verið kynntur, Chesson Hadley, efsti maður á peningalista Web.com Tour 2017.
Nú verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar, en þeir 25 hljóta einnig spilarétt og kort fyrir 2017-2018 keppnistímabilið á PGA Tour.
Sá sem var í 7. sæti og komst inn á PGA Tour í gegnum Web.com Tour finals er bandaríski kylfingurinn Shawn Stefani hann var með verðlaunafé á Web.com Finals upp á samtals $99,240 .
Shawn Stefani fæddist 2. desember 1981 í Baytown, Texas og er því nýorðinn 36 ára. Í dag býr Stefani í Houston, Texas.
Hann er 1,88 m á hæð og 91 kg.
Stefani var í bandaríska háskólagolfinu og spilaði með Lamar University, þaðan sem hann útskrifaðist 2005.
Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2005 og spilaði á minni mótaröðum í 7 löng ár allt þar til 2012, þegar hann komst á Web.com Tour, þar sem hann sigraði tvívegis.
Fyrsti sigur hans kom í Midwest Classic í ágúst 2012 og sá síðari í október á the Miccosukee Championship sama ár.
Hann varð í 6. sæti á stigalista Web.com Tour og ávann sér kortið sitt á PGA Tour fyrir 2013 keppnistímabilið.
Á lokahring Opna bandaríska 2013 á Merion fór Stefani holu í höggi á 229-yarda (209 metra) 17. holunni, ten þetta var fyrsti ásinn í 18 ár í meistaramóti á vegum bandaríska golfsambandsins, sem haldin voru á Merion.
Hann notaði 4-járn við ásinn og högg hans bompaði niður halla til vinstri á flöt og rúllaði töluverða vegalengd í bollann.
Besti árangur Stefani í risamóti er einmitt T-59 árangur í Opna bandaríska 2013 og svo komst hann í gegnum niðurskurð og varð í 68. sæti í PGA Championship.
Hér má sjá viðtal við Stefani eftir að ljóst varð að hann hefði unnið kortið sitt aftur á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2017-2018, mótaröð þeirra bestu, en í viðtalinu táraðist hann SMELLIÐ HÉR:
Stefani er í 343. sæti heimslistans.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
