Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Sherman Santiwiwatthanaphong (20/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verða kynntar þær 2 stúlkur, sem deildu 30. sætinu þ.e. Sherman Santiwiwatthanaphong frá Thaílandi og hin bandaríska Maddie McCrary. Maddie hefir þegar verið kynnt, svo í dag er það Sherman Santiwiwatthanaphong.
Sherman Santiwiwatthanaphong fæddist 9. nóvember 1996 og er því 21 árs. Það sem meira er hún á upp á afmæli sama dag og ár og Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK. Þ.a.l. fleiri en 1 flott golfkona fædd þennan dag!!!
Sherman byrjaði að spila golf 13 ára. Heimabær hennar er Bueng Kan og hún gerðist atvinnumaður í golfi 2014.
Meðal áhugamála Sherman er að horfa á kvikmyndir og uppáhaldslið hennar er Manchester United.
Meðal hápunkta á golfferli Sherman er eftirfarandi:
Hún var sigurvegari á Symetra Tour Championship árið 2015
Hún var sigurvegari Asean School Game (2012,2013)
Hún sigraði á Thailand Ladies Open (2013)
Hún sigraði á Sigha Classic (2013)
Hún sigraði á Thailand Ladies Amatuer
Eins sigraði Sherman á Singha-sat Thai LPGA Championship (2014)
Sherman komst á LPGA 2016 og spilaði í fyrra á mótaröðinni með takmörkuðum árangri (komst aðeins 7 sinnum í gegnum niðurskurð af 21 móti sem hún tók þátt í) og er nú aðeins með takmarkaðan spilarétt.
Hér má loks sjá kynningarviðtal LPGA frá 2015 við Sherman SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
