PGA: 9 kylfingar sem þarfnast sárlega sigurs á PGA Tour 2018 (2/3)
Á undanförnum árum höfum við séð leikmenn á PGA Tour, sem hafa risið hratt upp á stjörnuhiminn með sigri og síðan hefir ekkert spurst til þeirra. Eða þeir hafa stöðugt verið nálægt því að sigra en aldrei almennilega tekist að næla í sigurinn. Það sem sagt er um þá er að þeir þarfnist sigurs sárlega eða „að tími væri kominn á sigur þeirra.“
Kylfingar eins og Kevin Chappell, Pat Perez, Kyle Stanley og Kevin Kisner koma upp í hugann. Þeir eiga það sameiginlegt að sagt var um þá að tími væri kominn á þá (að sigra).
Hér á eftir verður getið fyrstu 3 kylfinga af 9 sem tími er kominn á (umfjöllun um hina 6 birtist í 2 öðrum greinum hér að Golf 1).
Taka verður þó fram um lista þessara 9 kylfinga:
*Enginn sem hefir unnið utan Bandaríkjanna er á listanum. Þó Tommy Fleetwood, Alex Noren, og Tyrell Hatton vanti sárlega sigur á PGA Tour þá sigruðu þeir utan Bandaríkjanna 2016-’17.
• Sigurvegarar 10 eða fleiri móta á PGA Tour geta varla talist sárlega vanta það að sigra. Þannig að þó Jason Day og Rory McIlroy hafi gengið eyðimerkurgöngu sigurlega séð þá eru góðar líkur á að þeir jafni sig og snúi aftur á sigurpall fyrr eða síðar.
• Engir nýliðar eru í upptalningu þessara 9. Það er aðeins tímaspursmál hvenær „nýju strákarnir á PGA“ slá í gegn; menn eins og t.d. Keith Mitchell eða Peter Uihlein. Titleist erfinginn Uihlein sigraði líka á Web.com Tour í september sl.
En hér verður fjallað um næstu 3 af 9 (þ.e. nr. 4-6), sem telja verður að tími sé kominn á að sigri á PGA Tour og er að breyting verði á hjá 2018 (fyrstu 3 hafa þegar verið kynntir
4 Francesco Molinari
Líkt og Casey (sem talinn var upp fyrstur hinna 9 kylfinga) hefir Molinari haft það ágætt á PGA Tour frá árinu 2015 og hefir þénað meira en $5 milljónir á 3 síðustu keppnistímabilum. En hann á enn eftir að sigra á PGA Tour, ekki að hann hafi ekki haft næg tækifæri til þess 2017; hann varð T-7 (þ.e. jafn öðrum í 7. sæti) eða betra 5 sinnum, þ.á.m. varð hann í 2. sæti á PGA Championship risamótinu. Ef Molinari myndi aðeins bæta sig á flötunum gæti það leitt til fyrsta PGA Tour sigurs hans 2018.
5 Patrick Rodgers
Óstöðugur í púttum er mildilega til orða tekið þegar kemur að 2016-’17 keppnistímabili Rodgers, en á því tímabili komst hann aðeins 11 sinnum í gegnum niðurskurð af 27 mótum sem hann spilaði í, en hann kom sér þó í sigurstöðu á Farmers Insurance Open (T-4) og the John Deere Classic (2. sæti). Hann hefir einnig verið nálægt sigri sl. tvö keppnistímabil, hann varð T-2 á Wells Fargo mótinu 2015, í 3. sæti á Barracuda Championship sama ár (2015) og T-3 á Travelers Championship 2016. Rodgers sem þótti gríðarlegt efni með Stanford í bandaríska háskólagolfinu er talinn búa yfir of miklum hæfileikum til þess að sigra ekki a.m.k. 1 sinni á PGA Tour 2018; sérstaklega þegar tekið er tillit til að honum tókst að sigra 11 sinnum í háskólagolfinu og jafnaði þar með met Tiger Woods.
6 Charles Howell III
Enginn skilur hversu erfitt er að sigra á PGA Tour betur en Howell III, sem hefir þénað meira en $30 milljónir á ferli sínum en aðeins sigrað 2 sinnum; síðasti sigur hans vannst 2007 eða fyrir 11 árum. Hver myndi samt ekki vilja vera í stöðu Howell fjárhagslega séð? Hann hefir 6 sinnum orðið í 2. sæti og óteljandi skipti verið meðal efstu. Kannski 2018 sé ár Howell?
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
