Úrtökumót f. LET: Guðrún Brá komst g. niðurskurð!!!
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er í 59. sæti fyrir lokahringinn á lokaúrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina. Guðrún Brá er á +1 samtals (74-70-70-75) eða 289 höggum. Skorið var niður fyrir lokahringinn og fær hún því að spila hann. Guðrún Brá þarf að leika vel á lokahringnum í dag (miðvikudaginn 20. desember) til þess að komast í hóp 25 efstu sem fá keppnisrétt á LET.
Guðrún Brá komst örugglega í gegnum fyrra stig úrtökumótsins sem fór einnig fram í Marókkó líkt og lokaúrtökumótið.
Þetta er sjötta árið í röð þar sem lokúrtökumótið fer fram í Marokkó og úrslitin ráðast þann 20. desember.
Alls eru 106 keppendur frá 18 þjóðum sem keppa á tveimur völlum, Amelkis og Palm Golf Ourika Marrakech. Alls eru leiknir fimm 18 holu hringir og komast 60 efstu áfram á lokahringinn.
Alls komast 25 efstu á LET Evrópumótaröðina. Fimm efstu komast í styrkleikaflokk 5b og þær sem enda í sætum 6.-25. verða í styrkleikaflokki 8a.
Þetta er í fyrsta sinn sem Guðrún Brá reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir LET. Alls eru 53 leikmenn á úrtökumótinu sem eru í fyrsta sinn á lokaúrtökumótinu.
Hér er hægt að fylgjast með gangi mála hjá Guðrúnu Brá SMELLIÐ HÉR:
Guðrún Brá er fjórði íslenski kylfingurinn sem kemst í lokaúrtökumótið hjá LET Evrópumótaröðinni. Ólöf María Jónsdóttir braut ísinn fyrst allra á sínum tíma með því að tryggja sér keppnisrétt á LET.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir fylgdu síðan í kjölfarið og Guðrún Brá gæti því orðið fjórða íslenska konan sem tryggir sér keppnisrétt á mótaröð þeirra bestu í Evrópu.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
