Nýju stúlkurnar á LPGA 2018: Dottie Ardina (8/49)
Það voru 49 stúlkur sem hlutu spilarétt á LPGA mótaröðina 2018 í gegnum lokaúrtökumót LPGA sem fram fór á LPGA International vellinum í Flórída dagana 28. nóvember – 3. desember s.l.
Það voru 29 sem hlutu takmarkaðan spilarétt og 20 efstu stúlkurnar sem hlutu kortið sitt á LPGA þ.e. fullan þátttökurétt í öllum mótum LPGA 2018.
Venja hefir verið undanfarin ár að kynna „nýju“ stúlkurnar á LPGA og líkt og áður verður byrjað að kynna þær sem rétt sluppu inn á mótaröðina og hlutu takmarkaðan spilarétt endað á þeirri sem sigraði í lokaúrtökumótinu, en það var japanska stúlkan Nasa Hataoka.
Nú verða kynntar þær 13 stúlkur, sem deildu 32. sætinu og hlutu takmarkaðan spilarétt og í dag verður Dottie Ardina kynnt, en tvær fyrstu af stúlkunum 13, kanadíska stúlkan Maude Aimee Leblanc og Camilla Lennarth frá Svíþjóð hafa þegar verið kynntar.
Dottie Ardina fæddist 1994 á Filippseyjum og er því 23 ára. Hún byrjaði að spila golf 5 ára.
Hún vann fjölda áhugamannamóta í Asíu og var fulltrúi Filippseyja í Espirito Santo Trophy (World Amateur Team Championships) árin 2006 og 2010.
Þegar hún tók fyrst þátt í Espirito 2006 var hún aðeins 12 ára, sem gerði hana að yngsta keppanda í World Amateur Team Championships
Ardina gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 4 árum, eða 2013.
Hún hefir spilað í 2. deildinni í bandaríska kvennagolfinu, Symetra Tour, frá árinu 2014. Besti árangur hennar á Symetra Tour hingað til er T-2 árangur árið 2015 á Four Winds Invitational. Ardina spilaði einnig á LPGA Tour árið 2014.
Það ár vann hún líka Singha-Sat LPGA Championship í Thaílandi.
Ardina var valin til þess að vera fulltrúi Filippseyja á Sumar Ólympíuleikunum í Ríó 2016 – og þó upphaflega hafi verið talið að hún myndi taka þátt kaus hún að gera það ekki vegna hættunnar á smiti vegna Zika vírusins.
Meðal áhugamála Dottie Ardina er að teikna.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
