Nýju strákarnir á PGA 2018: Denny McCarthy (39/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað var á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hlutu þannig kortin sín í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 var byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Hann hefir þegar verið kynntur, Chesson Hadley, efsti maður á peningalista Web.com Tour 2017.
Nú verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar, en þeir 25 hljóta einnig spilarétt og kort fyrir 2017-2018 keppnistímabilið á PGA Tour.
Sá sem var í 12. sæti og komst inn á PGA Tour í gegnum Web.com Tour finals er bandaríski kylfingurinn Denny McCarthy en hann var með verðlaunafé á Web.com Finals upp á samtals $63,105.
Denny McCarthy fæddist 4. mars 1993 í Takoma Park, Maryland,í Bandaríkjunum og er því 24 ára. Hann er sonur Elenu og Dennis McCarthy og á einn bróður, Ryan og eina systur, Christinu.
Klúbburinn sem hann er í heima í Maryland heitir Argyle CC og er í Silver Spring, Maryland.
McCarthy er 1,75 m á hæð og 75 kg.
Hann var í bandaríska háskólagolfinu, lék með liði University of Virginia.
McCarthy útskrifaðist árið 2015 með gráðu í mannfræði og hefir spilað á Web.com Tour frá árinu 2016.
Liðakeppnir sem Denny McCarthy hefir tekið þátt í eru:
2014 Eisenhower Trophy
2015 Walker Cup
Ýmsir fróðleiksmolar um McCarthy:
*Hann hefir gaman að öllu utan dyra þ.á.m. að vera á ströndinni og spila borðtennis undir berum himni.
*Hann var í Georgetown Prep í Washington, D.C.
*Bróðir hans Ryan spilaði golf með Loyola (Md.) og frændi hans Mike McCarthy spilaði í bandaríska háskólagolfinu með James Madison.
*Systir Denny, Christina, spilaði lacrosse at James Madison.
*Denny spilaði körfubolta í menntaskóla öll 4 árin.
*Denny hitti eitt sinn Cal Ripken, Jr., í einum af síðustu heimaleikjum hans. Systir Denny var við það að klemmast af æstum áhangendum Cal og Cal dró han úr mannfjöldanum. Þau fengu tækifæri þá að tala við Cal.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
