Landsliðshópar GSÍ 2018 – Jussi valdi 29 kylfinga
Jussi Pitkanen, afreksstjóri GSÍ, hefur valið þá leikmenn sem skipa landsliðshópa eldri og yngri kylfinga á árinu 2018. Atvinnukylfingar eru ekki í landsliðshóp Íslands þar sem landsliðin keppa á EM og HM áhugamanna. Alls eru 28 kylfingar í hópnum.
Landsliðshópurinn gæti breyst á tímabilinu og fer það eftir árangri og frammistöðu leikmanna sem eru í núverandi hóp og þeirra sem voru ekki valdir að þessu sinni.
Frammistaða leikmanna í landsliðshópnum verður metin með reglulegu millibili þar sem ýmsir þættir verða lagðir til grundvallar. Þar má nefna frammistöðu og framfarir á undanförnum tímabilum. Einnig eru framtíðaráform og markmið leikmanna sem ætla sér í fremstu röð í golfíþróttinni höfð til hliðsjónar
Leikmenn sem skipa yngri landsliðshóp GSÍ fá stuðning og leiðsögn frá kylfingum sem eru í Forskot afrekssjóði. Nánar verður greint frá þeirri tilhögun síðar.
Alls eru 14 leikmenn í landsliðshóp karla og kvenna, níu karlar og fimm konur. Landsliðshópur Íslands er þannig skipaður:
Konur:
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Saga Traustadóttir, GR
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Berglind Björnsdóttir, GR
Helga Kristín Einarsdóttir, GK.
Karlar:
Gísli Sveinbergsson, GK
Bjarki Pétursson, GB
Aron Snær Júlíusson, GKG
Fannar Ingi Steingrímsson, GHG
Rúnar Arnórsson, GK
Hlynur Bergsson, GKG
Ragnar Már Garðarsson, GKG
Henning Darri Þórðarson, GK
Vikar Jónasson, GK
Yngri landsliðshópur Íslands er þannig skipaður:
14 ára og yngri:
Böðvar Bragi Pálsson, GR
Eva María Gestsdóttir, GKG
Kinga Korpak, GS
15-16 ára:
Sigurður Bjarki Blumenstein, GR
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR
17-18 ára:
Ingvar Andri Magnússon, GR
Viktor Ingi Magnússon, GR
Daníel Ísak Steinarsson, GK
Ragnar Már Ríkharðsson, GM
Andrea Björg Bergsdóttir, GKG
Amanda Guðrún Bjarnadóttir, GHD
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
