Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2017 | 17:30

Það tókst í 264. tilraun!

Það er búinn að vera langur aðdragandi að fyrsta sigri ástralska kylfingsins Wade Ormsby á Evróputúrnum.

Hann sigraði fyrr í dag á UBS Hong Kong Open, eftir taugatrekkjandi lokasprett þar sem hann átti í fullu fangi við m.a. spænska kylfinginn Rafa Cabrera Bello.

Þegar Ormsby þrípúttaði á 18. flöt þótti mörgum augljóst að keppnin færi í bráðabana milli Ormsby og Bello, en Bello sló í bönker og átti erfitt með að komast upp og 1. sigur Ormsby á Evróputúrnum þar með innsiglaður.

En búið er að bíða lengi eftir 1. sigrinum á Evróputúrnum; það tókst loks hjá Ormsby í 264. tilraun!!!

Þetta er ótrúlegt,“ sagði hinn 37 ára Ormsby eftir sigurinn. „Eftir 260 og eitthvað mót á Evróputúrnum er þetta fyrsti sigurinn og hann hefir mikla þýðingu fyrir mig!“

Vegna sigursins fer Ormsby upp um 201 sæti á heimslistanum og mun í næstu viku verða í 118. sæti, sem er besti árangur Ormsby á ferlinum!!!