Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Gavin Moynihan (3/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
9 kylfingar deildu með sér 25. sætinu í ár; léku allir hringina 6 á samtals 13 undir pari.
Í dag verður Gavin Moynihan kynntur en hann var einn af þeim 9 heppnu síðustu, sem hlutu kortið sitt en Matthew Nixon og Cristofer Blomstrand hafa þegar verið kynntir
Gavin Moynihan fæddist 17. september 1994 í Dublin á Írlandi og er því 23 ára.
Moynihan átti góðan áhugamannaferil; sigraði m.a. Irish Amateur Open Championship árin 2012 og 2015 og tók tvívegis þátt í Walker Cup.
Hann lék um tíma í bandaríska haskólagolfinu með liði University of Alabama, en hætti á 2. ári sínu þar (þ.e. sem sophomore).
Moynihan gerðist atvinnumaður þegar eftir Walker Cup 2015 og spilaði á fyrsta móti sínu sem atvinnumaður á Opna Ítalska 2015.
Árið 2016 náði hann niðurskurði á Opna írska og varð T-3 á Open La Pinetina á the Alps Tour.
Hann sigraði í fyrsta sinn á móti sem atvinnumaður nú í ár, þ.e. í apríl 2017, þegar hann vann the Lookers Championship á PGA EuroPro Tour.
Í mánuðinum þar á eftir varð hann í 2. sæti áthe Andalucía Costa del Sol Match Play 9, á Áskorendamótaröð Evrópu, en hann tapaði 2&1 fyrir Aaron Rai í úrslitunum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
