Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2017 | 08:00

Day í 2. sæti á 2. degi Opna ástralska!

Í nótt var spilaður 2. hringurinn á 102. Emirates Australian Open, sem skartar nokkrum af skærustu stjörnum golfsins; Jordan Spieth sem á titil að verja og fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Jason Day.

Mótið fer fram í The Australian Golf Club Rosebery, í Sydney, New South Wales, Ástralíu.

Day er í 2. sæti á samtals 8 undir pari 134 höggum (66 68) aðeins 1 höggi á eftir heimamanninum, Lucas Herbert sem leiðir í hálfleik á samtals 9 undir pari (67 66 ).

Jordan Spieth gengur ekkert í titilvörninni; hann er T-19 á samtals 1 undir pari, 141 höggi (70 71).

Til þess að sjá stöðuna á Opna ástralska SMELLIÐ HÉR: