LPGA: Ólafía á -2 e. 1. dag í Flórída – Fer út kl. 13:42 í dag – Fylgist með HÉR!
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, tekur nú þátt í lokamóti LPGA í ár, sem fram fer í Naples, Flórída.
Þátttakendur eru aðeins 74 og verðlaunafé með því hæsta sem gerist á LPGA.
Ólafía Þórunn kemst á mótið vegna góðrar frammistöðu á nýliðaári sínu á LPGA, þar sem hún náði að ljúka keppnistímabilinu í 80. sæti stigalistans.
Eftir 1. dag á mótinu í Naples er Ólafía Þórunn T-18, þ.e. jöfn 17 öðrum kylfingum í 18. sæti.
Þær 17 sem deila 18. sætinu með Ólafíu eru margar meðal þekktustu kylfinga heims og nægir þar að nefna nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna Shanshan Feng, nr. 6 á Rolex heimslista kvenna, þ.e. sænska kylfinginn Önnu Nordqvist, og þá sem er nr. 7 IK Kim.
Nr. 4 á heimslistanum, Lexi Thompson er í sæti fyrir neðan Ólafíu og hinar þ.e. T-36
Ólafía lék á 2 undir pari, 70 höggum, fékk 1 fugl, 14 pör og 3 skolla.
Sjá má stöðuna á lokamóti LPGA með því að SMELLA HÉR:
Ólafía á síðan rástíma kl. 8:42 að staðartíma sem er kl. 13:42 að okkar tíma
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
