Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2017 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2018: Brett Stegmaier (32/50)

Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.

Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.

Byrjað var á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hlutu þannig kortin sín í 1. deild, PGA Tour.

Líkt og venja er hér á Golf 1 var byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Hann hefir þegar verið kynntur, Chesson Hadley, efsti maður á peningalista Web.com Tour 2017.

Nú verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar, en þeir 25 hljóta einnig spilarétt og kort fyrir 2017-2018 keppnistímabilið á PGA Tour.

Sá sem var í 19. sæti og komst inn á PGA Tour í gegnum Web.com Tour finals er Brett Stegmaier frá Bandaríkjunum, en hann var með verðlaunafé á Web.com Finals upp á samtals $46,500.

Brett Stegmaier fæddist í Madison, Conneticut, 2. júlí 1983 og er því 34 ára.

Hann er 1,91 m á hæð og 82 kg.

Stegmaier lék í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Florida. Golfklúbburinn sem hann tilheyrir í Flórída er Bent Pine GC á Vero Beach, en hann býr í Jupiter (líkt og Tiger Woods).

Stegmaier gerðist atvinnumaður í golfi 2006. Hann er Titleist karl en sjá má hvað er í poka Stegmaier með því að SMELLA HÉR: 

Ýmsir fróðleiksmolar um Stegmaier:

-Hann fylgdist með PGA Tour mótinu Travelers Championship í Hartford, Conneticut, þegar hann var barn.

– Það vita fáir að Stegmaier er flughræddur.

-Uppáhaldslið hans eru New England Patriots og Toronto Blue Jays.

-Uppáhaldsíþróttir fyrir utan golfið eru bandarískur fótbolti og hafnarbolti.

Stegmaier hefir spilað á Web.com Tour frá árinu 2013 og á PGA Tour frá árinu 2016.