Guðrún Brá og Berglind
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2017 | 18:00

Berglind og Guðrún Brá keppa í fyrsta sinn á úrtökumóti LET

Berglind Björnsdóttir, GR, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, hefja leik á fimmtudaginn á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina. Þetta er í fyrsta sinn sem þær reyna fyrir sér á þessu úrtökumóti. Leikið er í Marokkó en lokaúrtökumótið fer einnig fram í Marokkó um miðjan desember.

Alls er keppt á þremur keppnisvöllum á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina og komast um 30 efstu áfram á lokastigið. Á Palm vellinum þar sem Berglind og Guðrún Brá keppa eru um 50 keppendur.

Berglind er stigameistari Eimskipsmótaraðarinnar 2016-2017 og Guðrún Brá varð Íslandsmeistari í holukeppni í KPMG-bikarnum í Vestmannaeyjum s.l. sumar.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR eru báðar með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Valdís Þóra er í sæti nr. 113. á stigalistanum þegar eitt mót er eftir á keppnistímabilinu. Hún þarf að þoka sér upp í 80. sætið eða ofar til þess að halda keppnisrétti sínum á næsta tímabili.

Texti. GSÍ