Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2017 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2018: Steve Wheatcroft (30/50)

Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.

Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.

Byrjað var á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hlutu þannig kortin sín í 1. deild, PGA Tour.

Líkt og venja er hér á Golf 1 var byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Hann var kynntur í gær, Chesson Hadley, efsti maður á peningalista Web.com Tour 2017.

Nú verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar, en þeir 25 hljóta einnig spilarétt og kort fyrir 2017-2018 keppnistímabilið á PGA Tour.

Sá sem var í 21. sæti og komst inn á PGA Tour í gegnum Web.com Tour finals er Steve Wheatcroft frá Bandaríkjunum en hann var með verðlaunafé á Web.com Finals upp á samtals $44,526.

Steve Wheatcroft fæddist í Indiana, Pennsylvaníu, 21. febrúar 1978 og er því 39 ára.

Hann byrjaði í golfinu með afa og ömmu. Í dag er hann kvæntur Sarah Michelle Skevington (síðan 2013).

Hann er 1,91 m á hæð og 98 kg.

Wheatcroft lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Indiana University Bloomington og útskrifaðist þaðan 2001. Það ár, 2001 gerðist hann jafnframt atvinnumaður í golfi.

Wheatcroft er félagi í TPC Sawgrass í Flórída.

Meðal áhugamála Wheatcroft er að elda, hlusta á tónlist og horfa á kvikmyndir.

Wheatcroft hefir spilað á Web.com Tour frá árinu 2006 og verið inn og út á PGA Tour frá árinu 2007.

Hann á tvo sigra á Web.com Tour í beltinu:

2011 Melwood Prince George’s County Open Presented by Under Armour
2014 Albertsons Boise Open presented by Kraft Nabisco