Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2017 | 19:00

LPGA: Feng sigraði á Toto Japan Classic

Það var kínverski kylfingurinn Shanshan Feng sem stóð uppi sem sigurvegari á Toto Japan Classic mótinu, sem var mót vikunnar á LPGA mótaröðinni.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók ekki þátt í mótinu.

Feng lék á samtals 19 undir pari, 197 höggum (66 – 63 – 68).

Hún átti 2 högg á heimakonuna Ai Suzuki, sem lék á 17 undir pari (66 – 65 – 68) og 4 högg á hina sænsku Önnu Nordqvist, sem landaði 3. sætinu á samtals 15 undir pari (67 – 68 – 66).

Til þess að sjá lokastöðuna a Toto Japan Classic SMELLIÐ HÉR: