18 svölustu herbergin í golfinu (3/3)
Íslenskir kylfingar eru þekktir fyrir að ferðast mikið, sérstaklega þegar kólna tekur í veðri hér á Íslandinu góða og betra er að leita til heitari landa til að stunda uppáhaldsiðjuna, golfið.
Framboð ferðaskrifstofa á golfferðum hefir aukist og kylfingar hafa kynnst dásemdargolfstöðum, sem hver eru öðrum fegri og veglegri í hlaðborðum og viðgjörningi við svanga kylfinga, þegar þeir koma inn eftir að hafa varið deginum í golfi.
Vistarverurnar, herbergin sem dvalist er í erlendis eru afar mismunandi og mismunandi, auðvitað, hvað kylfingar leggja mikið upp úr þeim.
Fyrir suma er dvalarstaðurinn aukaatriði, golfiðkunin nr. 1.
Allir vilja hafa herbergin sem þægilegust, að sjálfsögðu, hrein og fín og laus við skorkvikyndi, sem því miður er mikið af í heitari löndum, en svo eru virkilega til topp-svíturnar, sem bjóða upp á allt og miklu meira: besta útsýnið yfir golfstaðinn, nálægð við völlinn, allt og virkilega allt 1. flokks. Hvaða herbergi skyldu vera þau bestu á golfstöðum?
Golf Digest hefir um 1300 starfsmenn, sem allir eru sérfræðingar á sínu sviði, vinna við að gefa golfstöðum einkunnir, hafa ferðast mikið milli golfstaða og þekkja þá eins og handarbakið á sér og þessir sérfræðingar komu saman og völdu 18 bestu topp-lúxus herbergin. Niðurstaða þeirra er eftirfandi, en þeim þykja eftirfandi 18 herbergi þau bestu. Hér verða síðustu 6 af þessum 18 kynnt en fyrstu 12 hafa nú þegar verið kynnt:
• • •
13 THE OLD COURSE HOTEL, ST. ANDREWS, SKOTLAND
Fairway Suites
Hægt er að horfa á kylfinga spila Road Hole af svölunum. Hér er það staðsetningin og útsýnið sem er það dýrmæta v/herbergið.

Úr Fairway Suite á St. Andrews Old Course

Úr Fariway svítunni á St. Andrews hjá Road Hole á Old Course
• • •
14 PEBBLE BEACH (KALIFORNÍA) RESORTS
Fairway One villas, Eastwood and Palmer smáhýsi fyrir fjóra
Þær eru jafngóðar Fairway One villurnar og veitingastaðurinn í Spanish Bay eða The Sloat Suite, en í þessum villum eru golfgestirnir í næsta nágrenni við 1. teig.

Svefnherbergi í Fairway One Villu á Pebble Beach, Kaliforníu

• • •
15 PINE VALLEY (NEW JERSEY) GOLF CLUB
The Lodge
Það sem er best við herbergin í The Lodge (fyrir utan allan 1. flokks aðbúnaðinn (sem fá má alls staðar annarsstaðar) er frábært útsýni yfir 5. holu Pine Valley.

Frá 5. holu á Pine Valley
• • •
16 ROYAL DORNOCH, SCOTLAND
The Links House
Rétt hjá 1. teig er þetta 5 stjörnu hótel, sem býður aðeins það besta í þeim 14 herbergjum, sem í boði eru.

The Links House

Svefnherbergi í Links House
• • •
17 SECESSION GOLF CLUB, BEAUFORT, SUÐUR-KARÓLÍNU
Herbergin fyrir ofan klúbbhúsið
Enn er það útsýnið yfir golfvöllinn (hér: Secession) sem er aðlallinn við þetta herbergi.

Secession klúbbhúsið
• • •
18 TRUMP TURNBERRY, SKOTLAND
Lighthouse suite við 9. og 10. holu
Nýjar svítur í vitanum – þar eru gestir í þessum víðfræga Ailsa velli í nálægð við bestu holur vallarins (þá 8-11.)

Gisting í Turnberry vitanum – þar eru einhver bestu herbergin í golfinu

Eitt svefnherbergja í Turnberry vitanum

Stofa í Turnberry vitanum
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
