Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2017 | 06:00

LET: Valdís Þóra fer út kl. 8:25 í Abu Dhabi – Fylgist m/gengi hennar HÉR!

Valdís Þóra Jónsdóttir hefur keppni í dag, miðvikudaginn 1. nóvember 2017 á Fatima meistaramótinu á  sterkustu kvengolfmótaröð Evrópu – LET. Íslandsmeistarinn 2017 hefur leik kl. 12:25 að staðartíma eða kl. 8:25 að íslenskum tíma. Valdís er með enskum og skoskum kylfingum í ráshóp fyrstu tvo dagana, Emily Toy frá Englandi og Michele Thomson frá Skotlandi.

Hægt að fylgjast með gangi mála með því að SMELLA HÉR: 

Saddyiad völlurinn þar sem mótið fer fram er hannaður af Gary Player frá Suður-Afríku.

Alls eru 126 keppendur og er heildarverðlaunaféð rétt um 60 milljónir kr. Sýnt verður beint frá mótinu á Golfstöðinni.

Mótið markar upphaf lokakafla mótaraðarinnar á þessu tímabili. Valdís Þóra er í 108. sæti stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Hún þarf að koma sér í hóp 80 efstu til þess að halda keppnisrétti sínum á sterkustu mótaröð Evrópu.

Mótið í Abu Dhabi er eitt af sterkustu mótum tímabilsins og verðlaunaféð er með því mesta á þessu ári á einstöku móti.

Texti: GSÍ