Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2017 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2018: Sam Ryder (21/50)

Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.

Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.

Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.

Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.

Sá sem varð í 5. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals $321,753 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $7,448; Verðlaunafé á reglul. tímabili: $314,306) var bandaríski kylfingurinn Sam Ryder.

Sam Ryder fæddist í Winter Park, Flórída 15. desember 1989 og er því 27 ára.

Í dag býr hann í Longwood, Flórída og golfklúbburinn sem hann tilheyrir þar er Heathrow CC.

Ryder lék golf í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Stetson University og varð tvívegis All-American með liðinu, sigraði 7 sinnum í einstaklingskeppnum og sigraði 2012 í einstaklingskeppni the Atlantic Sun Conference Championship.

Ryder gerðist atvinnumaður í golfi árið 2012. Frá árinu 2014  spilaði hann á hinum kanadíska Mackenzie Tour, en á Web.com Tour frá árinu 2016.

Ryder sigraði einu sinni á Mackenzie túrnum þ.e. árið 2015 á National Capital Open to Support Our Troops.

Hann á 1 sigur í beltinu á Web.com Tour, þ.e. þann sem lagði grunninn að veru hans á PGA Tour þ.e. á Pinnacle Bank Championship presented by Heartland Chevy Dealers

Sam Ryder er með hávaxnari mönnum á PGA Tour, 1,88 m á hæð.

Ýmsir fróðleiksmolar um Ryder:

Ryder finnst gaman í  körfubolta og tennis.

Í draumaholli Ryder myndu auk hans vera Tiger Woods, Arnold Palmer og Ben Hogan.

Það vita ekki margir að hann hefir það sem kallað er „a silky jumpshot.“