Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1 Þórður Rafn hættur í atvinnugolfi
„Ég taldi að núna væri rétti tíminn til að leggja atvinnumannaferilinn á hilluna í bili. Ég var frekar þreyttur á ferðalögunum sem fylgja þessu og ég gat ekki séð það fyrir mér að taka enn eitt árið á Pro Golf atvinnumótaröðinni eða annarri slíkri mótaröð,“ segir Þórður Rafn Gissurarson úr GR sem hóf nýverið störf á golfdeild ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn.
Þórður Rafn fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í golfi árið 2015 á Garðavelli en hann hefur leikið um margra ára skeið á þýsku Pro Golf atvinnumótaröðinni sem er þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.
„Ég er orðinn þrítugur og ég held að það sé hámarksaldur til þess að vera á Pro Golf mótaröðinni eða slíkri mótaröð. Ég hefði eflaust haldið áfram ef ég hefði fengið einhver tækifæri á Áskorendamótaröðinni eða næst sterkustu mótaröð Evrópu. Það reyndist ekki vera fyrir hendi og ég er því að taka næsta skref í lífinu,“ bætir Þórður Rafn við en verkefnalistinn verður langur hjá honum í vetur.
„Ég er byrjaður í meistaranámi við háskólann við Bifröst, sem er fjarnám sem ég tek meðfram vinnunni hjá Úrval Útsýn. Í janúar 2018 byrja ég einnig í PGA golfkennaraskólanum hér á Íslandi – ef það nám verður í boði. Það verður því brjálað að gera.“
Þórður Rafn hefur ekki lagt golfkylfunum á hilluna og mun leika á Eimskipsmótaröðinni á Íslandi næsta sumar. „Ég sé bara til hvernig formið verður á mér. Mér stendur til boða að taka þátt í lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska meistaramótið 2018 og það er á dagskrá að nýta þann glugga. Ef næsta sumar verður gott hér á landi í golfinu þá er aldrei að vita nema ég skelli mér í úrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina. Það er langt í þessa viðburði og allt getur breyst – en það verður allavega nóg að gera hjá mér,“ segir Þórður Rafn við golf.is.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
