Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2017 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2018: Andrew Yun (9/50)

Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.

Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.

Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.

Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.

Sá sem varð í 17. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals $227,156 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $4,300; Verðlaunafé á reglul. tímabili:$222,856) var bandaríski kylfingurinn Andrew Yun .

Andrew Yun fæddist 17. maí 1991 í Tacoma, Washington og er því 26 ára.

Hann er 1,73 m á hæð og 79 kg.