Nýju strákarnir á PGA 2018: Ethan Tracy (5/50)
Það voru 25 efstu á peningalista Web.com Tour, sem hlutu kortin sín og þar með fullan spilarétt á PGA Tour, keppnistímabilið 2017-2018.
Golf 1 hefir haft þann vana á undanförnum árum að kynna alla þessa 50 nýju og ekki svo nýju, sem hins vegar hljóta spilarétt sinn að nýju á PGA Tour í gegnum 2. deildina, Web.com Tour.
Byrjað verður á því að kynna þá 25 sem efstir voru á peningalista Web.com Tour og hljóta þannig kortið sitt í 1. deild, PGA Tour.
Líkt og venja er hér á Golf 1 verður byrjað að kynna þann, sem rétt slapp inn í gegnum peningalistann og síðan endað á þeim sem var á toppnum. Síðan verður tekið til við að kynna þann sem rétt slapp inn í gegnum Web.com Finals og endað á þeim sem var á toppnum þar.
Sá sem varð í 21. sæti peningalistans með samtals verðlaunafé upp á samtals $189,211 (Verðlaunafé í Web.com Finals: $28,000; Verðlaunafé á reglul. tímabili:$161,211) var bandaríski kylfingurinn Ethan Tracy .
Ethan Tracy fæddist í Columbus, Ohio, 10. nóvember 1989 og á sama afmælisdag og Andri Þór „okkar“ Björnsson, atvinnukylfingur úr GR, Sigmundur Einar Másson, GKG og spænski kylfingurinn Jon Rahm.
Tracy er því 27 ára. Hann er 1,8 m á hæð og 73 kg.
Tracy var í Hilliard Darby High School og eins var hann í bandaríska háskólagolfinu, en hann keppti fyrir Arkansas Razorbacks þar sem hann var „all-Southeastern Conference.“
Hann átti glæstan áhugamannsferil, vann m.a. Western Amateur, árið 2011.
Tracy gerðist atvinnumaður í golfi árið eftir 2012.
Atvinnumannsferill Ethan Tracy
Tracy hefir 4 sinnum sigrað á minni mótaröðum. Árið 2015 spilaði Tracy á PGA Tour Canada (þar var besti árangur hans T7 á Bayview Place Island Savings Open) og eins PGA Tour Latinoamérica (þar var besti árangur hans T2 at the Lexus Panama Classic). Hann varð í 22. sæti á kanadíska peningalistanum og í 40. sæti á suður-ameríska PGA Tour peningalistanum.
Árið 2016 tók Tracy þátt í Opna bandaríska, náði niðurskurði og lauk keppni T-65, sem til dagsins í dag er besti árangur hans í risamóti.
Þann 12. febrúar 2017 sigraði Tracy í Club Colombia Championship eftir bráðabana við Roberto Diaz, þar sem hann vann á 2. holu bráðabanans með skori upp á 13 undir pari, 271 höggi (69-69-68-65). Þessi sigur lagði grunninn að því að Tracy spilar nú á PGA Tour.
Tracy komst því miður ekki í gegnum niðurskurð 1. móti PGA Tour keppnistímabilið 2017-2018, Safeway Open, sem lauk í gær 8. október 2017.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
