Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2017 | 18:00

Halla Björk, Jóhanna Lea og Berglind keppa á Evrópumóti golfklúbba í Slóvakíu – Staðan

Í dag hófst Evrópumót golfklúbba (2017 European Ladies Club Trophy) í Slóvakíu.

Með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í sumar tryggði kvennalið Golfklúbbs Reykjavíkur sér keppnisrétt á mótinu.

Þær Halla Björk Ragnarsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir og Berglind Björnsdóttir keppa í Slóvakíu og þeim til halds og trausts er Ingi Rúnar Gíslason, liðsstjóri.

Mótið fer fram á Welten vellinum í Bac og þátttakendur eru 45 í 16 liðum og verða leiknir þrír hringir, dagana 5.-7. október 2017.

Eftir 1. dag er staðan sú að Berglind hefir leikið best í sveit GR; lék á 5 yfir pari 77 höggum meðan þær Halla Björk og Jóhanna Lea hafa báðar leikið á 10 yfir pari, 87 höggum.

Í liðakeppninni er sveit GR í 15. sæti eftir 1. dag.

Sjá má stöðuna eftir 1. dag á Evrópumóti golfklúbba með því að SMELLA HÉR: