Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2017 | 18:00

Nordic Golf League: Axel leikmaður ársins og Haraldur nýliði ársins

Axel Bóasson úr Keili og Haraldur Franklín Magnús úr GR fengu viðurkenningar fyrir árangur sinn á Nordic Tour mótaröðinni í dag (4. október 2017)

Axel er leikmaður ársins á atvinnumótaröðinni og Haraldur Franklín er nýliði ársins.

Á morgun hefst næst síðasta mót tímabilsins á Himmerland Golf og Spa vellinum.

Þar verða Axel og Haraldur Franklín í eldlínunni.

Hart er barist um fimm efstu sætin á stigalista mótaraðarinnar sem gefa keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni, næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, á næstu leiktíð.

Axel hefur nú þegar tryggt sér eitt af fimm efstu sætinum en Haraldur Franklín er í áttunda sæti og þarf að leika vel á næstu tveimur mótum til að komast í topp 5.