Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2017 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Björn Óskar lauk keppni T-34 í Kentucky

Björn Óskar Guðjónsson, GM og golflið hans í bandaríska háskólagolfinu, Louisiana Lafayette, luku í dag keppni á Louisville Cardinal Challenge.

Mótið fór fram í Louisville, Kentucky og stóð dagana 29. september – 1. október 2017.

Þátttakendur voru 69 frá 13 háskólum.

Björn Óskar lék á samtals 8 yfir pari, 224 höggum (71 78 75).

Louisiana varð í 6. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Louisville Cardinal Challenge SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Björn Óskars og Louisiana er 8.-10. október n.k. í Tennessee.