Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Inga María Björgvinsdóttir og Lilja G. Gunnarsdóttir ——- 23. september 2017

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Inga María Björgvinsdóttir og Lilja G. Gunnarsdóttir.

Lilja er fædd 23. september 1967 og á því 50 ára merkisafmæli í dag. Lilja er kylfingur og margt stórkylfinga í kringum hana.  Innilega til hamingju með merkisafmælið, Lilja!

Inga María er fædd 23. september 1997 og á því 20 ára afmæli í dag. Hún er úr stórri golffjölskyldu, sem flestir tengjast Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni Ingu Maríu til hamingju með árin 20 ….

Inga María Björgvinsdóttir. Mynd: Í einkaeigu

Inga María Björgvins · 20 ára (Innilega til hamingju með stórafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Rodney Pampling, 23. september 1969 (48 ára) og Stacy Prammanasudh,(W-7 módel) 23. september 1979 (38 ára);

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is