17/06/2016 European Challenge Tour 2016, Najeti Open, Aa Saint-Omer GC, Lumbers, France. 16-19 Jun. Birgir Hafthorsson of Iceland during the second round.
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2017 | 08:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur á +1 e. 6 holur 1. hrings í Kazakhstan

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG verður á meðal keppenda á einu stærsta móti ársins á Áskorendamótaröðinni sem hefst í dag, fimmtudaginn 21. september í Kazakhstan. Þetta er í 13. sinn sem keppt er í Kazakhstan á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.

Fylgjast má með Birgi Leif á skortöflu með því að SMELLA HÉR: 

Þegar þessi frétt er birt (kl. 8:00 að íslenskum tíma) er Birgir Leifur búinn að spila 6 holur og því miður búinn að fá 1 skolla – er sem sagt á 1 yfir pari.

Verðlaunaféð er með því hæsta sem gerist á mótaröðinni og nánast allir sterkustu leikmenn mótaraðarinnar keppa á þessu móti, sem fram fer á  Nurtau vellinum í Almaty.

Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Nurtau golfvellinum í Kazakhstan með því að SMELLA HÉR: 

Birgir Leifur sigraði sem kunnugt er á móti sem fram fór Frakklandi fyrir skemmstu og var það fyrsti sigur hans á Áskorendamótaröðinni. Með sigrinum tryggði Birgir Leifur sér keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni næstu tvö tímabil.

Hann er í harðri baráttu að komast í hóp 15 efstu á peningalista Áskorendamótaraðarinnar – sem tryggir keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni á næsta tímabili.

Birgir er sem stendur í 19. sæti en hann var í 16. sæti fyrir mótið sem fram fór í síðustu viku á Írlandi – þar sem Birgir Leifur komst ekki í gegnum niðurskurðinn.