Afmæliskylfingur dagsins: Kristófer Karl Karlsson – 17. september 2017
Afmæliskylfingur dagsins er Kristófer Karl Karlsson, afrekskylfingur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Kristófer Karl er fæddur 17. september 2001 og er því 16 ára í dag.
Kristófer Karl var valinn efnilegastur GKJ-ingurinn um þetta leyti fyrir 5 árum, 2012 (þá 11 ára) og hann hefir svo sannarlega staðið undir því. Það ár (2012) spilaði Kristófer Karl á Áskorendamótaröði Arion banka og þar sigraði hann í 1. og 4. mótinu í strákaflokki.

Kristín María Þorsteinsdóttir, GKJ og Kristófer Karl Karlsson, GKJ þóttu efnilegust 2012. Mynd: GKJ
Kristófer Karl sigraði eftirminnilega á 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2014, sem fram fór á Korpunni. Hann átti m.a. stórglæsilegan hring upp á 4 undir pari, 68 högg!!! Þetta var fyrsti sigur Kristófer Karls á Íslandsbankamótaröðinni, en hann var nú samt búinn að komast ansi nálægt sigri en aðeins munaði 1 höggi á Íslandsmótinu í höggleik í strákaflokki að hann næði fyrsta Íslandsmeistaratitili sínum á Hellu.
Í Korpunni setti Kristófer Karl jafnframt vallarmet af bláum teigum, með 4 höggum undir pari (og það 12 ára!!!) – þetta var í fyrsta sinn sem hann spilaði undir pari og hann gerði það með flottum hætti fékk 4 fugla og 14 pör þ.e. skilaði „hreinu“ skollalausu skorkorti!!!
Í fyrra og nú í ár (2017) hefir Kristófer Karl spilað á Eimskipsmótaröðinni.
Frábær kylfingur á ferð þar sem Kristófer Karl er!!!
Bróðir Kristófers Karls er Theodór Emil Karlsson, lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Univeristy of Arkansas at Monticello.
Komast má á facebook síðu Kristófer Karls til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Kristófer Karl Karlsson, GM. Mynd: Í einkaeigu
Kristófer Karl Karlsson (Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Torakichi Nakamura (中村 寅吉 Nakamura Torakichi, 17. september 1915 – 11. feb 2008); Mary Lou Daniel Crocker 17. september 1944 (73 ára); Pala Ofeigsdottir (64 árs), Ragnhildur Pála, 17. september 1951 (66 ára) Scott William Simpson, 17. september 1955 (62 ára); Craig A. Spence, 17. september 1974 (43 ára); Jennifer Rosales, frá Filipseyjum 17. september 1978 (39 ára), Ryo Ishikawa (japanska: 石川 遼) 17. september 1991 (26 ára); Byong-Hun An, (Frá S-Kóreu) 17. september 1991 (26 ára); Róbert Theodórsson, 17. september 1995 (22 ára) ….. og ….. Ingibjorg Olof Vilhjalmsdottir
Golf 1 óskar öllum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
