Haraldur Franklín Magnús. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2017 | 20:00

Nordic Golf League: Haraldur á besta skori ísl. keppendanna 2. dag í Danmörku

Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR, léku allir 2. hring á Willis Towers Watson Masters mótinu, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni og fer fram 7.-9. september 2017.

Mótsstaður er Kokkedal golfvöllurinn, í Hørsholm, 30 km norður af Kaupmannahöfn og verður lokahringurinn spilaður á morgun.

Axel er sem fyrri daginn á besta skori íslensku keppendanna, en hann er búinn að spila á samtals 3 undir pari, 141 höggi (70 71). Í dag var Axel á 1 undir pari, 71 höggi; fékk 4 fugla og 3 skolla og er T-7, þ.e. deilir 7. sætinu með 4 öðrum keppendum.

Haraldur Franklín stórbætti sig frá fyrri degi, í gær lék hann á 76 höggum en í dag tók hann 7 högga sveiflu í rétta átt; þ.e. kom í hús á 69 glæsihöggum; lék á 3 undir pari á hring þar sem hann fékk 5 fugla og 2 skolla. Samtals er Haraldur Franklín búinn að spila á 1 yfir pari, 145 höggum  (76 69).

Andri Þór komst því miður ekki í gegnum niðurskurð. Niðurskurður var miðaður við samtals 3 yfir pari, en Andri Þór var á 6 yfir pari, 150 höggum (75 75).

 

Sjá má stöðuna á Willis Towers Watson Masters mótinu með því að SMELLA HÉR: