Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2017 | 08:00

Georgia Hall valin kvenkylfingur ársins í Bretlandi

American Golf hélt upp á ‘Best of British’ með því að halda í fyrsta sinn Golf Awards, þar sem breskir kylfingar voru heiðraðir fyrir góðan árangur á árinu 2017, en athöfnin fór frá á the Belfry í gær, 7. september 2017. Meðal sigurvegara kvöldsins, sem valdir voru af þúsundum breskra kylfinga voru bresku kylfingarnir  Georgia Hall og Tommy Fleetwood , sem og golfútbúnaðarrisinn PING, sem valið var golfvörumerki ársins.

Það voru alveg skýrar línur í flokkunum karl- og kvenkylfingur ársins.  Það sem kjósendur hafa m.a. haft í huga þegar þeir kusu Georgiu er að hún er nú í 3. sæti á stigalista Evrópumótaraðar kvenna, LET og hefir þrívegis verið meðal efstu 5 í mótum m.a. varð hún í 3. sæti á Opna breska kvenrisamótinu, þ.e. Ricoh Women’s British Open. Georgia náði einnig 2 stigum fyrir lið Evrópu í Solheim Cup, en það var nokkuð sem kom henni í 1. sæti umfram Charley Hull, sem varð í 2. sæti á ‘Best of British’

Hall var himinlifandi með viðurkenningu sína, sérstaklega þar sem henni var veitt hún á Solheim Cup ári. Hún sagði m.a.: „Ég var þarna að keppa við svo marga af góðum vinum mínum og liðsfélögum í Solheim Cup. Mér er svo mikill heiður sýndur…. þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig og ég met þessa mikils.