Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ragnhildur Kristinsdóttir – 6. september 2017

Afmæliskylfingur dagsins er Ragnhildur Kristinsdóttir . Hún er fædd 6. september 1997 og á því 20 ára stórafmæli í dag! Ragnhildur er afrekskylfingur í GR og búin að standa sig hreint frábærlega á mótum nú í ár. Ragnhildur kemur til með að stunda nám í Bandaríkjunum  nú í vetur við Eastern Kentucky University og verður að sjálfsögðu með í bandaríska háskólagolfinu!!!

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið

Ragnhildur Kristinsdóttir GR. Mynd: Golf 1

Ragnhildur Kristinsdóttir GR. Mynd: Golf 1

Ragnhildur Kristinsdóttir – 20 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Dow Finsterwald, 6. september 1929 (88 ára); Jóhann Smári Jóhannesson, 6. september 1935 (82 ára); Sigríður Margrét Gudmundsdottir (67 ára) Jakob Helgi Richter, GK, 6. september 1951 (66 ára); Jóhannes Bjarki Sigurðsson 6. september 1975 (42 ára); Stephen Gangluff, 6. september 1975 (41 árs) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is