Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2017 | 08:00

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst lék best 1. dag af 5 íslenskum keppendum

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í áttunda sæti eftir fyrsta keppnisdaginn á Nordic golf mótaröðinni sem fram fer í Finnlandi. GR-ingurinn er einn af fimm íslenskum kylfingum sem taka þátt á þessu móti.

Andri Þór Björnsson, Axel Bóasson, Haraldur Franklín Magnús og Ólafur Björn Loftsson eru einnig á meðal keppenda.

Guðmundur Ágúst lék á 67 höggum (-5), og er hann tveimur höggum frá efsta sætinu. Andri Þór (GR) og Axel (GK) lék á -2 eða 70 höggum. Þeir eru í 28. sæti. Ólafur Björn (GKG) er á parinu eða 72 höggum. Hann er í 49. sæti. Haraldur Franklín lék á +4 eða 76 höggum og er GR-ingurinn í 88. sæti.

Sjá má stöðuna á Polapunkti Finnish Open, sem fram fer í Kullo golfklúbbnum í Kulloonkylä, í Finland með því að SMELLA HÉR: 

Texti: GSÍ