Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 28. 2017 | 11:00

Íslandsbankamótaröðin 2017 (6): Andrea Ýr sigraði í telpuflokki 15-16 ára

Lokamót Íslandsbankamótaraðarinnar fór fram á Leirdalsvelli hjá GKG dagana 25.-27. ágúst.

Mótið var jafnframt sjötta mót tímabilsins. Fella þurfti niður eina umferð í heild sinni á laugardeginum vegna veðurs.

Tveir elstu aldurshóparnir léku því tvær umferðir, á föstudegi og sunnudegi, en aðrir keppnishópar léku eina umferð á sunnudegi við ágætar veðuraðstæður.

Í telpuflokki, 15-16 ára sigraði Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA á 5 yfir pari, 76 höggum.

Heildarúrslit í telpuflokki 15 -16 ára á 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2017 urðu eftirfarandi:

1 Andrea Ýr Ásmundsdóttir GA 8 F 39 37 76 5 76 76 5
2 Hulda Clara Gestsdóttir GKG 7 F 39 41 80 9 80 80 9
3 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir GR 10 F 41 40 81 10 81 81 10
4 María Björk Pálsdóttir GKG 14 F 44 39 83 12 83 83 12
5 Lovísa Ólafsdóttir GR 15 F 40 46 86 15 86 86 15
6 Ásdís Valtýsdóttir GR 14 F 43 45 88 17 88 88 17
7 Árný Eik Dagsdóttir GKG 14 F 41 48 89 18 89 89 18
8 Kristín Sól Guðmundsdóttir GM 21 F 48 42 90 19 90 90 19
9 Hildur Heba Einarsdóttir GSS 23 F 46 47 93 22 93 93 22
10 Marianna Ulriksen GA 20 F 46 48 94 23 94 94 23
11 Alma Rún Ragnarsdóttir GKG 12 F 46 50 96 25 96 96 25
12 Karen Sif Arnarsdóttir GKG 28 F 52 53 105 34 105 105 34
13 Hafdís Ósk Hrannarsdóttir GKG 26 F 54 51 105 34 105 105 34