Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2017 | 16:30

Íslandsmót golfklúbba – yngri kylfinga: GKG Íslandsmeistarar í drengjaflokki 15 ára og yngri!!!

Íslandsmót golfklúbba yngri kylfinga fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, um sl. helgi, 18.-20. ágúst 2017.

A-sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar fagnaði Íslandsmeistaratitlinum eftir spennandi úrslitaleik gegn A-sveit Golfklúbbs Reykjavíkur.

Íslandsmeistarasveit A-sveitar GKG var skipuð með eftirfarandi hætti: 

Breki G. Arndal
Dagur Fannar Ólafsson
Flosi Valgeir Jakobsson
Kristján Jökull Marinósson
Sigurður Arnar Garðarsson
Sveinn Andri Sigurpálsson
Liðstjóri : Haukur Már Ólafsson

Leynir frá Akranesi hafði betur í leiknum um bronsverðlaunin gegn Keili úr Hafnafirði.

Úrslitin í drengjaflokki má sjá hér að neðan: 

1. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar -A
2. Golfklúbbur Reykjavíkur
3. Golfklúbburinn Leynir -B
4. Golfklúbburinn Keilir
5. Golklúbbur Akureyrar
6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
7. Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar
8. Golfklúbbur Selfoss
9. Golfklúbbur Reykjavíkur -B
10. Nesklúbburinn
11. Golfklúbbur Vestmannaeyja
12. Golfklúbburinn Leynir -A
13. Golfklúbbur Sauðárkróks

Nánar um úrslit einstakra viðureigna má sjá með því að SMELLA HÉR: