Kristján Þór sigraði í Einvíginu á Nesinu!!!
Einvígið á Nesinu – Shoot out fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri í dag. Mótið var fyrst haldið árið 1997 og var þetta því í 21. skipti sem mótið er haldið. Venju samkvæmt léku þeir kylfingar sem boðið var í mótið 9 holu höggleik í morgun. þar lék best af öllum Björgvin Sigurbergsson sem nú tók þátt í Einvíginu í 20. sinn en hann lék á 34 höggum, eða tveimur höggum undir pari vallarins.
Eftir hádegið hófst svo Einvígið sjálft þar sem einn keppandi dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn á 9. braut. Á 9. teignum stóðu eftir þeir Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson úr Golfklúbbi Suðurnesja og fór svo að lokum að Kristján Þór sigraði eftir að þeir höfðu báðir fengið par á holuna og svo Einvígi (shoot-out) í lokin.
Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir þátttökuna. Mótið var að venju góðgerðarmót og afhenti Auður Þórarinsdóttir, frá DHL á Íslandi, Guðjóni Jóhannssyni frá Vinaliðaliðaverkefninu, eina milljón króna en verkefnið leggur áherslu á að stöðva einelti í skólum.
Nesklúbburinn vill þakka keppendum kærlega fyrir þátttökuna, áhorfendum, DHL á Íslandi, Stöð2sport og umfram allt þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem gerðu klúbbnum kleift að halda þetta mót.
Þess mætti loks geta að þetta er í 2. sinn sem Kristján Þór sigrar í Einvíginu á Nesinu, en hann sigraði í fyrra skiptið árið 2014.
1. sæti: Kristján Þór Einarsson, GM
2. sæti: Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS
3. sæti: Birgir Björn Magnússon, GK
4. sæti: Björgvin Sigurbergsson, GK
5. sæti: Valdís Þóra Jónsdóttir, GL
6. sæti: Björgvin Þorsteinsson, GA
7. sæti: Ingvar Andri Magnússon, GR
8. sæti: Úlfar Jónsson, GKG
9. sæti: Oddur Óli Jónasson, NK
10. sæti:Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR
11. sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
