Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 4. 2017 | 08:00

LPGA: Ólafía lék 1. hring á Opna breska á +3 – Fer út kl. 8:09 – Fylgist með HÉR!!!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, lauk 1. hring á Opna breska á 3 yfir pari, 75 höggum.

Hún er T-122 þ.e. jöfn 8 öðrum í 122. sæti og verður að bæta sig a.m.k. um 4 högg til þess að ná niðurskurði, sem miðaður er við 1 undir pari eða betra eins og staðan er nú.

Meðal kylfinga sem deila 122. sætinu með Ólafíu eru ástralska golfdrottningin Karrie Webb og snjalli, franski kvenkylfingurinn Joanna Klatten.

Í efsta sæti er Michelle Wie, en hún lék 1. hring á 8 undir pari, 64 höggum.

Það er vonandi að Ólafía eigi frábæran hring í dag og fljúgi í gegnum niðurskurð! Fylgist með á Golf 1 en Ólafía Þórunn fer út eftir 9 mínútur þ.e. kl. 9:09 að staðartíma (sem er kl. 8:09 að íslenskum tíma).

Sjá má stöðuna á Ricoh Opna breska kvenrisamótinu með því að SMELLA HÉR: