Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2017 | 23:30

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017 (5): Hilmar Veigar sigraði í fl. hnokka 10 ára og yngri

Áskorendamótaröð Íslandsbanka fór fram á Jaðarsvelli laugardaginn 29. júlí við ágætis aðstæður.

Keppendur komu víðsvegar að til þess að keppa á þessari skemmtilegu mótaröð sem er ætluð þeim sem vilja öðlast keppnsreynslu áður en haldið er á sjálfa Íslandsbankamótaröðina.

Heimir Örn Árnason framkvæmdastjóri GA og Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ afhentu verðlaunin í mótslok að lokinni pylsuveislu sem keppendum er boðið í eftir hvert einasta mót á Áskorendamótaröðinni.

Yngri kylfingarnir (10-12 ára) léku 9 holur (25 þátttakendur), meðan þeir eldri (12-18 ára) léku 18 holur (11 þátttakendur).

Sigurvegari í hnokkaflokki 10 ára og yngri varð Hilmar Veigar Ágústsson, GL en hann lék 9 holur á 12 yfir pari, 48 höggum.

Úrslit í flokki 10 ára og yngri hnokka urðu eftirfarandi:

1 Hilmar Veigar Ágústsson GL 22 F 0 48 48 12 48 48 12
2 Barri Björgvinsson GHD 30 F 0 55 55 19 55 55 19
3 Arnar Heimir Gestsson GKG 33 F 0 55 55 19 55 55 19
4 Maron Björgvinsson GHD 23 F 0 55 55 19 55 55 19