LET: Valdís Þóra gæti tryggt sér sæti á Opna breska í dag
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi hefur leik í dag á úrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið sem hefst á fimmtudaginn á Kingsbarns vellinum í Skotlandi. Mótið sem Valdís keppir á fer fram á Castle Course í St. Andrews í Skotlandi. Hún á rástíma kl. 11.00 í dag og er aðeins leikinn einn 18 holu hringur.
Alls eru 112 keppendur á þessu lokaúrtökumóti og komast 20 efstu inn á risamótið sem hefst á fimmtudaginn eins og áður segir. Valdís Þóra hefur leikið á einu risamóti á ferlinum en það var á Opna bandaríska meistaramótinu 13.-16. júlí s.l. Sjá má keppendalistann með því að SMELLA HÉR:
ALLS ERU 112 KEPPENDUR Á ÞESSU LOKAÚRTÖKUMÓTI OG KOMAST 20 EFSTU INN Á OPNA BRESKA.
Valdís Þóra komst inná þetta lokaúrtökumót vegna góðrar stöðu hennar á peningalista LET Evrópumótaraðarinnar þar sem hún er með keppnisrétt.
Eins og kunnugt er hefur Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR nú þegar tryggt sér keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu. Hún endaði í 13.-19. sæti á Opna skoska meistaramótinu sem lauk í gær og þar voru þrjú sæti á Opna breska í boði fyrir þá kylfinga sem höfðu ekki tryggt sér keppnisrétt á risamótinu. Allir kylfingarnir sem voru fyrir ofan Ólafíu á mótinu í Skotlandi höfðu tryggt sér keppnisrétt á Opna breska og þar af leiðandi fékk hún eitt af þessum þremur sætum sem voru í boði á því móti. Ef Valdís Þóra nær einu af 20 efstu sætunum í dag á lokaúrtökumótinu verða tveir íslenskir kylfingar á meðal keppenda á risamótinu Opna breska sem er eitt af fimm risamótum ársins á LPGA/LET atvinnumótaröðum kvenna.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
