Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd: Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2017 | 14:00

Frábær árangur hjá Guðrúnu Brá á EM – endaði í 4. sæti

Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK) náði stórkostlegum árangri á Evrópumóti einstaklinga í kvennaflokki. Guðrún Brá lék samtals á -5 á fjórum hringjum á mótinu sem fram fór í Sviss. Á lokahringnum lék Guðrún Brá á 69 höggum eða -3 en hún fékk alls sex fugla á hringnum og þar af fjóra fugla á síðari 9 holunum.

Árangur Guðrúnar er einn sá besti sem íslenskur kylfingur hefur náð á þessu móti þar sem sterkustu áhugakylfingar Evrópu taka þátt.

Agathe Laisne frá Frakklandi varð Evrópumeistari á -8 en þar á eftir komu tveir kylfingar frá Sviss, Albane Valenzuela á -7 samtals og Morgane Metraux á -6 samtals.

Saga Traustadóttir, GR og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, náðu ekki að komast í gegnum niðurskurðinn.

Allir bestu áhugakylfingar Evrópu tóku þátt á þessu móti.

Alls voru leiknir 4 hringir á 4 keppnisdögum og voru þátttakendur 144. Mótið fór fram í Sviss rétt norðan við borgina Lausanne, en keppnisvöllurinn var í 850 metra hæð.

Sjá má lokastöðuna á EM einstaklinga í kvennaflokki með því að SMELLA HÉR: