Generated by IJG JPEG Library Generated by IJG JPEG Library
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2017 | 09:00

Hvítblæði virðist hafa tekið sig upp hjá Lyle

Ástralski kylfingurinn  Jarrod Lyle er á spítala til að undirgangast rannsóknir í  Melbourne, sbr. það sem kom fram í fréttatilkynningu fjölskyldu hans í gær, en hvítblæðið (myeloid leukemia) virðist hafa tekið sig upp hjá honum.

Hinn 35 ára Lyle, sem spilað hefir nokkur keppnistímabil á PGA Tour og unnið tvo titla á Web.Com Tour, hefir áður þurft að berjast við krabbamein, í fyrra skiptið 1998 og síðan aftur 2012.

Rútínublóðprúfa fyrr í þessari viku sýndi neikvæðar niðurstöður og var Jarrod þá þegar lagður inn á spítala og settur undir umsjá fyrrum sérfræðinga sinna,“ mátti lesa í fréttatilkynningu frá fjölskyldu hans, sem Golf Australia birti í gær.

Hann mun vera þar, þar til full sjúkdómsgreining liggur fyrir.“

Hann hefir undirgengist þó nokkrar rannsóknir og þær munu verða fleiri á næstu dögum. Á þessu stigi höfum við ekki fengið endanlega greiningu, þannig að ákveðin greining liggur ekki fyrir og við höfum ekki fengið neitt meðferðarplan.“

Við getum ekki getið okkur til um neitt þar til við fáum fleiri upplýsingar.“

Lyle sneri aftur á PGA Tour á undanþágu vegna veikinda, árið 2015, eftir að hafa unnið á hvítblæðinu í 2. sinn, en honum tókst ekki að halda korti sínu og hefir verið að spila í heimalandinu, Ástralíu, undanfarin misseri.