Þórður Rafn
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2017 | 10:00

Pro Golf Tour: Þórður Rafn T-36 e. 2. dag á Preis des Hardenberg mótinu

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, tekur þátt í Preis des Hardenberg mótinu, sem er hluti af Pro Golf mótaröðinni.

Mótið fer fram á Hardenberg GolfResort, á Gut Levershausen í Northeim, í Niedersachsen; eiginlega í miðju Þýskalandi, fyrir norðan Göttingen, sem er næsta stórborg Þýskalands við Northeim.

Mótið fer fram dagana 23.-25. júlí og lýkur í dag.

Þórður Rafn er samtals búinn að spila á 2 yfir pari, 74 höggum.

Sjá má stöðuna í Preis des Hardenberg mótinu með því að SMELLA HÉR: