Eimskipsmótaröðin 2017 (6): 6 efstir og jafnir í karlaflokki á Íslandsmótinu e. 2. dag
Það er gríðarleg spenna í karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi. Eins og staðan er núna eru sex kylfingar efstir og jafnir´a -5 samtals en keppni í karlaflokki lýkur ekki fyrr en um kl. 21 í kvöld. Axel Bóasson úr Keili náði frábærri fugla hrinu með þremur fuglum í röð á lokaholum dagsins á Hvaleyrarvelli í dag. Hann lék á 68 höggum eða -3. Egill Ragnar Gunnarsson úr GKG lék á -4 í dag og blandaði sér í baráttuna um sigurinn ásamt fleiri kylfingum. Eins og áður segir er keppni ekki lokið í karlaflokki í dag og gæti staðan breyst þegar líður á daginn.
„Pútterinn datt í gang á 13. flöt og ég náði mér aðeins á strik eftir það. Ég er ánægður með lokakaflann í dag og gott að fá þrjá fugla í röð en fram að því hafði ég varla sett neitt merkilegt pútt ofaní. Það verður spennandi keppni framundan og gaman að sjá hversu margir eru að leika undir pari vallar,“ sagði Axel Bóasson úr Keili eftir hringinn í dag.
Staðan eins og hún var kl. 17 í dag.
1.- 6. Axel Bóasson, GK (69-68) 137 högg -5
1.- 6. Ólafur Björn Loftsson, GKG (69-68) 137 högg -5
1.- 6. Andri Þór Björnsson, GR (68-69) 137 högg -5
1.- 6. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG (68-69) 137 högg -5
1.- 6. Egill Ragnar Gunnarsson, GKG (67-70) 137 högg -5
1.- 6. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (66-71) 137 högg -5
7. Aron Snær Júlíusson, GKG (71-67) 138 högg -4
8.-10. Gísli Sveinbergsson, GK (70-69) 139 högg -3
8.-10. Haraldur Franklín Magnús, GR (69-70) 139 högg -3
8.-10. Vikar Jónasson, GK (65-74) 139 högg -3
11.-13. Andri Már Óskarsson, GHR (71-69) 140 högg -2
11.-13. Ragnar Már Garðarsson, GKG (70-70) 140 -2
11.-13. Theodór Emil Karlsson, GM (70-70) 140 högg -2
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
