Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2017 | 09:00

Íslenska karlalandsliðið bætti sig mikið á 2. keppnisdegi EM

Íslenska karlalandsliðið er í 11. sæti af alls 16 liðum sem keppa í efstu deild á Evrópumótinu sem fram fer á Diamond-vellinum í Austurríki þegar tveimur höggleiksdögum er lokið. Ísland leikur því í B-riðli um fall í 2. deild en liðin í sætum 1.-8. keppa um Evrópumeistaratitilinn.

Til þess að sjá stöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR: 

Fimm bestu skorin á hverjum hring telja í hverri umferð. Ísland var +24 yfir pari líkt og Þjóðverjar og Tékkar eftir fyrsta hringinn. Í dag bætti íslenska liðið sig gríðarlega og lék á +5 samtals.

Bjarki Pétursson (GB) (72-73)
Fannar Ingi Steingrímsson (GHG) (80-74).
Gísli Sveinbergsson (GK) (76-72)
Henning Darri Þórðarson (GK) (79-75)
Aron Snær Júlíusson (GKG) (84-71)
Rúnar Arnórsson (GK) (77-81)