Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir fararstjóri, Amanda Guðrún Bjarnadóttir (GHD), Andrea Bergsdóttir (Hills GK, Svíþjóð), Kinga Korpak (GS), Zuzanna Korpak (GS), Andrea Ýr Ásmundsdóttir (GA), Hulda Clara Gestsdóttir (GKG) og Jussi Pitkänen afreksstjóri GSÍ.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2017 | 07:00

Stúlknalandsliðið í 19. sæti e. 2. keppnisdag á EM

Stúlknalandsliðið í golfi hóf keppni í gær, 11. júní 2017,  á Evrópumótinu sem fram fer á St. Laurence Golf Club í Finnlandi. Íslenska liðið lék á +51 samtals á fyrsta hringnum, en bætti skor sitt á öðrum hringnum með samtals +47 í dag.

Fimm bestu skorin telja á hverjum hring.

Hér má sjá skor stúlknanna eftir 2 fyrstu keppnisdagana:

Andrea Bergsdóttir (Hills GK, Svíþjóð), (76-80).
Andrea Ýr Ásmundsdóttir (GA), (80-83).
Hulda Clara Gestsdóttir (GKG) (81-78).
Kinga Korpak (GS), (85-81).
Amanda Bjarnadóttir (GHD), (89-87).
Zuzanna Korpak (GS), (91-85).

Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: