Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2017 | 12:00

PGA: Nýliðinn Schauffele sigraði á Greenbrier Classic

Það var nýliði á PGA Tour, Xander Schauffele, sem stóð uppi sem sigurvegari á Greenbrier Classic mótinu.

Schauffele lék á samtals 14 undir pari, 266 höggum (64 69 66 67).

Í 2. sæti varð Bandaríkjamaðurinn Robert Streb á samtals 13 undir pari og í 3. sæti urðu Sebastian Muñoz frá Kólombíu og Bandaríkjamaðurinn Jamie Lovemark.

Til þess að sjá hápunkta Schauffele  á Greenbrier Classic SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá lokastöðuna á Greenbrier Classic SMELLIÐ HÉR: