Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2017 | 20:00

LPGA: Ólafía Þórunn lauk leik á Thornberry Creek LPGA Classic

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur í GR, lauk nú fyrir skemmstu keppni á Thornberry Creek LPGA Classic.

Spilað var á Oneida í Wisconsin.

Ólafía Þórunn lék á samtals 10 undir pari, 278 höggum (68 70 68 72) og er þegar þetta er ritað T-36.

Verði þessi sætistala endanlega niðurstaðan er þetta næstbesti árangur Ólafíu Þórunnar á LPGA mótaröðinni.

Ástralski kylfingurinn Katherine Kirk, er þegar þetta er ritað enn efst, þegar hún á 3 holur óspilaðar, en hún hefir samtals spilað á 22 undir pari.

Til þess að sjá lokastöðuna á Thornberry Creek LPGA Classic SMELLIÐ HÉR: